Um Elvu
Eg heiti Elva Björk Magnúsdóttir og er frá Akranesi. ég er fædd árið 1976.
Ég er í sambúð með Guðmundi Þórðarsyni og eigum við 2 frábær börn, þau Enok og Antoníu.
ég útskrifaðist sem hársnyrtir frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1998 og hef starfað sem slíkur nær óslitið síðan og haft gaman af. ég elska að vinna með höndunum og skapa!
Árið 2006 ákvað ég að nú væri kominn tími á að leyfa sköpunargleðinni að njóta sín enn meira og sótti ég því um að komast í gullsmíðanám í Kaupmannahöfn. Við fjölskyldan fluttum því til Kaupmannahafnar og hóf ég nám í Københavns Tekniske Skole
og kláraði þar grunndeild í gullsmíði um áramót 2006 – 2007. Lengra er ég þó ekki komin í náminu.
Í dag starfa ég sjálfstætt á hárgreiðslustofunni Street Cut á Norrebrogade í Kaupmannahöfn. ásamt því leigi ég
aðstöðu á verkstæði hjá hressum eldri gullsmið sem heitir Werner þar sem ég sit og smíða skart í frítíma mínum.
ég smíða mest úr silfri og messing. Hugmyndirnar sæki ég hingað og þangað en ég legg mest upp úr því að hlutirnir séu skemmtilegir!
Tilgangur með þessari síðu er að koma verkum mínum á framfæri. Endilega verið ófeimin við að hafa samband ef það er eitthvað sem þið hafið áhuga á að kaupa eða viljið sjálf koma með skemmtilegar hugmyndir.
Bestu kveðjur
Elva – elvisdesign
